Handbók: Sýningagerð og varðveisla safngripa
Eftir Nathalie Jacqueminet:
Fyrra hefti:
Seinna hefti:
Handbók um fyrirbyggjandi forvörslu textílverka
eftir Þórdísi Baldursdóttur:
Námskeið í skaðvaldavöktun 12. maí 2022 – upptaka
Ráðstefnurit 2018/Conefrence paper:
Þjóðminjasafn Íslands vinnur að útgáfu fyrstu handbókar á íslensku um varðveislu safnkosts. Um er að ræða tvö bindi með fræðsluefni sem tekur til margra þátta varðandi langtímavarðveislu efnislega hluta menningararfsins.
Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við Þjóðskjalasafn Íslands og Landbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Þá hefur Þjóðhátíðarsjóður stutt dyggilega við verkefnið.
Handbókin er ætluð öllum sem starfa við varðveislu menningararfsins, þar á meðal safnmönnum, skjalavörðum, fornleifafræðingum, prestum og staðarhöldurum, en nýtist einnig háskólanemum í þeim fræðigreinum sem tengjast menningararfinum.
Við undirbúning íslensku handbókarinnar var vönduð og ítarleg bandarísk handbók höfð til hliðsjónar, National Park Service Museum Handbook. Kaflar úr þessari handbók voru nýttir sem fyrirmynd að íslensku handbókinni, en forverðir og sérfræðingar á ýmsum sviðum hafa þýtt og staðfært textann með íslenskar aðstæður í huga.
Handbókin skiptist í tvö bindi:
Fyrra bindið fjallar um grunnatriði um umhverfi í söfnum, meðhöndlun og pökkun. Einnig er fjallað um skilyrði í geymslum, öryggi safnkosts og neyðaráætlun.
Seinna bindið mun fjalla um varðveislu gripa eftir tegundum og efni.
Handbók um varðveislu safnkosts
Athugið: Handbókin um varðveislu safnkost er eingöngu gefin út sem PDF-skjal. Mælt er með því að hún sé lesin á netinu til að virkja tenglana í textanum. Þetta er önnur útgáfa fyrsta bindis handbókarinnar (febrúar 2019).
Fyrra bindi:
Handbok-vardveislu-safnkosts-bindi1-2019
Seinna bindi:
Handbok-um-vardveislu-safnskost-seinna-bindi-03-2018 (1)
ART FORGERIES 2003
Dagana 4.-7. júní 2003 var haldin ráðstefnan: Art Forgeries á vegum félagsins. Var hún í Reykjavík. Ráðstefnuritið má finna hér:
Ráðstefnurit: Art forgery IIC NKF 2003
Landnamsruinen in Aðalstræti Konserving 2003-2007
Landnamsruinen in Aðalstræti Konserving 2003-2007 (Forvörsluskýrsla Landnámsskálans í Aðalstræti